sunnudagur, nóvember 30, 2003
Heitar fréttir úr fyrirsætuheiminum!!!!!atvinnufyrirsætan Þórdís Vala sem sögð var hafa lagst í helgan stein,sést nú í glanstímaritinu "10-11 Eggertsgötu" á öldum ljósvakans! þórdís vildi ekki gefa komment þegar bloggsíðan hafði samband við hana....
hmm...í gær fór ég til áu og horfði á Two towers,í lengdri útgáfu,með fæturna á Sveinbirni í fanginu. Myndin var að sjálfsögðu alltaf jafn yndisleg og enn yndislegri í fullri lengd! ég tel nú reyndar að fyrirsætan Þórdís hefði átt að leika Éowyn! en jæja....
Í dag í vinnunni var auðvitað alltaf jafn gaman...en ég held að kassastarfsmaðurinn minn hafi verið með niðurgang,en það er sá hinn sami og er búinn að gefa mér símanúmerið sitt"...ef kærastinn þinn er einhverntímann upptekinn..."(ath. ekki djók) svo þegar Jón kvöldvaktstjórinn mætti veifaði ég þúsundkalli og sagði "kemurðu ekki í nótt Jón??" hann horfði vægast sagt undarlega á mig sem og viðskiptavinir búðarinnar,en hann Jón minn var búinn að gleyma að sökum ölvunar að hann lánaði mér pening á djamminu um síðustu helgi þegar hann dró mig með sér á einhvern FMstað sem heitir Opus en þar dönsuðum við til dagmáls,við öll skemmtilegu lögin.
Hafdís og Halldóra hafa bætt linkum með mér á síðunni sinni,thanks guys!! en ég er ekki svo tæknivædd en ég er að reyna að setja upp kommentakerfi að ósk áu, og nú skelli ég mér í aðra tilraun á því!!
Comments:
Skrifa ummæli

